Með því að nota vefverslun Spunalín samþykkir þú þessa skilmála:

Tekið er við pöntunum í gegnum netverslunina allan sólarhringinn. Spunalín slf. sendir staðfestingu í tölvupósti þegar greiðsla hefur borist. Athugið að greiðsla er ekki samþykkt fyrr en staðfest er að varan er til á lager hjá okkur. Þegar búið er að samþykkja greiðslu og senda pöntunina af stað færðu staðfestingarpóst þess efnis.

Spunalín slf.  áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Þetta á einnig við ef villur í reiknireglum vefverslunar eiga sér stað.

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum. Verð geta breyst án fyrirvara. Öll verð eru með vsk. og eru reikningar gefnir út með vsk. Sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Sendingarkostnaður er að jafnaði kr. 850 þegar viðskiptavinur velur að fá pakkann sendan á næsta pósthús. Ef pantað er fyrir kr. 8.000 eða meira í einni pöntun fellur sendingarkostnaður niður fyrir þá pöntun.

Um allar pantanir sem dreift er af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Á vefsíðu Íslandspósts eru þessar upplýsingar aðgengilegar. Spunalín slf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Spunalín slf. til kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða fyrir að tryggja vöruna ef samið er um það sérstaklega og bætist sá kostnaður ofan á verð og sendingarkostnað skv. gjaldskrá Íslandspósts hverju sinni. Skrifið okkur póst á spunalin@gmail.com  ef þið viljið tryggja sendinguna. Allar sendingar eru rekjanlegar.

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í upprunalegum og óskemmdum umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í formi sömu eða sambærilegrar vöru í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. Upphæð bóta vegna galla verður aldrei hærri en verðmæti upprunalegu vörunnar. Að öðru leyti er vísað til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Spunalín slf. mun ekki afhenda þriðja aðila persónuupplýsingar sem verða til í tengslum við viðskiptin eða varðveita þær lengur en ástæða er til.

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

© 2023 Allur réttur áskilinn